Tobba Marinós

Vandræðaleg og drepfyndin

Vantar þig tilefni til dagdrykkju? Hér eru nokkur: Ömurlegir karlmenn, myglaðir draumar, hreyfiblinda, atvinnuleysi, kynlífsboð og -bönn og svo framvegis og svo framvegis …

„Sannleikurinn er oftar en ekki mun spaugilegri en nokkur skáldskapur. Ég gat eiginlega ekki haldið þessu rugli í mér,“ segir Tobba um nýju bókina. „Ég er viss um að það eru margir sem kannast við þennan vandræðagang sem fylgir þroskaferlinu. Því að verða ástfangin í fyrsta sinn, fatta að maður sé feitur, missa trúna á lífið, mistakast, finnast mikilvægt að safna servíéttum, verða óvart full, að vinna á Séð og Heyrt og reyna að komast í gegnum hvern einasta dag án þess að ganga af göflunum.“

Tobba Marinós heillaði fjölda manns með bókum sínum Makalaus og Lýtalaus. Í 20 tilefnum til dagdrykkju hleypir hún lesendum alveg inn að kviku með drepfyndnum, vandræðalegum og sorglegum sögum af sjálfri sér sem hver um sig gefur fullt tilefni til að skrúfa tappa af flösku og hella í glas. „Þessi bók er ekki ætluð til að breyta lífi fólks eða sem menningarlegt stórvirki heldur er hún mitt framlag til að gleðja fólk. Það að kalla fram bros og hlátur er vanmetið hlutverk í krefjandi þjóðfélagi eins og okkar. Það er einlæg ósk mín að fólk skelli upp úr við lestur þessarar bóka – þá er takmarkinu náð!“

Útgáfuhóf 20 tilefna til dagdrykkju verður haldið á Loft Hostel, Bankastræti 7, fimmtudaginn 15. maí kl. 17.

INNskráning

Nýskráning