Bókin Bard of Iceland er brautryðjandaverk um listaskáldið góða, Jónas Hallgrímsson. Við vekjum athygli bókmenntafólks og annarra á þessu merka riti sem án efa er með viðamestu bókum sem komið hafa út um íslenskt þjóðskáld á erlendu máli. Frábærlega skrifuð, greinargóð og skemmtileg bók sem er einstakur lykill að höfundarverki Jónasar, auk vandaðra þýðinga höfundarins, Dicks Ringlers. Við Íslendingar eigum honum gott að gjalda fyrir það þrekvirki að kynna „sóma Íslands“ svo veglega fyrir hinum enskumælandi heimi.
Von er á höfundinum í heimsókn hingað til lands um aðra helgi.