Í kvöld, miðvikudaginn 22. febrúar, mun Guðmundur Andri fjalla um bók sína Valeyrarvalsinn á bókakaffi í menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku.
Bókakaffið með Guðmundi Andra hefst kl. 20 og er eins og áður segir í kvöld í Gerðubergi í Breiðholti. Aðgangur er ókeypis.