Í tengslum við endurútgáfu ritsins Íslenskt vættatal eftir Árna Björnsson hvetjum við landsmenn til þess að kanna hvort einhverjar vættir vanti í ritið góða.
Ef þú þekkir sögu af trölli, kynjadýri, draugi, jólasveini eða öðrum holl- eða meinvættum sem ekki eru listaðar í bókinni mátt þú gjarnan senda okkur frásögnina á netfangið vaettatal@forlagid.is. Við höfum sérstakan áhuga á „nýlegum vættum“ en einnig þeim sem ekki hafa verið formlega skráðir í íslensk þjóðfræðirit áður.
Í Íslensku vættatali segir frá íbúum huliðsheima sem birst hafa alþýðu manna hér á landi í aldanna rás og allt fram á þennan dag. Þar má m.a. finna upplýsingar um álfa og huldufólk, tröll, dverga, kynjadýr, loftanda, jólasveina, fornmenn, landvætti, goðverur og drauga.
Í bókinni, sem hún hefur verið endurútgefin, eru nafngreindar helstu hollvættir og meinvættir í íslenskum sagnaarfi. Þeim er raðað í starfrófsröð og getið heimkynna, uppruna og helstu afreka. Vísað er í þjóðsagnasöfn og margvíslegar heimildir til frekari fróðleiks um verurnar og greinargóð kort benda á helstu dvalarstaði þeirra. Bókin hentar því einstaklega vel öllum sem vilja kynnast landinu og vættunum sem það geymir, hvort sem þeir leggja land undir fót eða láta hugann reika.
Árni Björnsson, sem þjóðkunnur er fyrir yfirburða þekkingu á íslenskum þjóðháttum, tók vættatalið saman og ritar auk þess inngang þess og eftirmála. Ritið hefur verið ófáanlegt um árabil en birtist nú í nýjum búningi, aukið og endurbætt.