Útlenski drengurinn

Útlenski drengurinn á Barnamenningarhátíð


Á sunnudagskvöldið verður leikritið Útlenski drengurinn eftir Þórarin Leifsson frumflutt í Tjarnarbíói í tengslum við barnamenningarhátíð. Þar er fjallað á gamansaman hátt um ósköp venjulegan íslenskan dreng sem lendir í því að yfirvöld telja hann vera útlending. Drengurinn missir ríkisfangið og bíður örlaga sinna á skólabókasafninu.
Leikendur eru Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Þorsteinn Bachmann, María Heba Þorkelsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Stefán Jónsson og Magnea Björk Valdimarsdóttir.  Vigdís Jakobsdóttir leikstýrir.
Leiklesturinn fer fram í Tjarnarbíói sunnudaginn 28. apríl kl. 18. Miðar verða afhentir við innganginn frá klukkan 17 og aðgangur er ókeypis.


INNskráning

Nýskráning