Við fögnum útkomu bókarinnar Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga í Þjóðmenningarhúsinu á morgun laugardag. Þar mun Sigrún Pálsdóttir sagnfræðingur segja stuttlega frá þessari mögnuðu og viðburðarríku sögu. Verið velkomin í Bókasalinn kl. 17 á þessum degi íslenskrar tungu.
Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga greinir frá lífi hjónanna Sigrúnar Briem og Friðgeirs Ólasonar sem árið 1940 lögðu af stað áleiðis til Bandaríkjanna í sérnám í læknisfræðum. Eftir fjögurra ára viðburðaríka vist snúa þau aftur heim; hann með doktorspróf frá Harvard, hún rétt búin að ljúka kandídatsári sínu – og sigla ásamt þremur börnum sínum með Goðafossi haustið 1944. Sigrún og Friðgeir – Ferðasaga er saga úr síðari heimsstyrjöldinni sem snertir marga ólíka þætti í sögu Íslands á 20. öld, en inn í hana sogast líka nánast óteljandi atburðir úr sögu bandarísks samfélags.
Bók Sigrúnar byggir á bréfum og dagbókum þeirra hjóna en höfundur notar einnig fjölda ljósmynda til að draga upp senur og dýrmæt augnablik í lífi fjölskyldunnar og er frásögnin af atburðarrásinni um borð í Goðafossi eftir að tundurkeyti frá þýskum kafbát skellur á honum er hér sögð frá nýju sjónarhorni með Sigúnu og Friðgeir, og börn þeirra þrjú í brennidepli.
Fyrri bók Sigrúnar, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar, sem út kom árið 2010 vakti mikla athygli og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.