Í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar Blágresi, ,,Hvað ef himininn brotnar… “ verður blásið til veglegra útgáfuhljómleika í Kaldalóni í Hörpu fimmtudagskvöldið 8. mars. Hljómplatan er samstarfsverkefni Blágresi og rithöfundarins ástsæla Einars Más Guðmundssonar. Einar samdi alla texta plötunnar við frumsamin lög meðlima Blágresi.
Á tónleikunum mun skáldið Einar Már Guðmundsson lesa úr verkum sínum auk Bjarmars Guðlaugssonar og Gunnars Þórðarsonar sem munu leika úr lög safni sinna þjóðþekktu perla.
Nánari upplýsingar á midi.is og harpa.is