Við fögnum útkomu Tímakistunnar í Borgarleikhúsinu! Verið velkomin á útgáfuhátíð, miðvikudagskvöldið 6. nóvember kl. 20. Tímakistan er margslungið ævintýri fyrir alla fjölskylduna eftir metsöluhöfundinn Andra Snæ Magnason. Í bókinni má lesa um stúlku sem vaknar í draugaborg þar sem mosavaxnir bílar líkjast broddgöltum. Hér er óður konungur sem vill sigra tímann, Exel aðstoðarmaður hans sem breytir lofti í gull, nashyrningar, dádýr, kóngulær, Prinsessan af Pangeu og margt fleira. Tímakistan er bók fyrir núverandi og fyrrverandi börn.