Á fimmtudag, 27. október, kemur út ný bók eftir Guðmund Andra Thorsson og af því tilefni verður blásið til útgáfugleði þann sama dag í Bókabúð Máls og menningar sem hefst kl. 17.
Nýju bókinni, sem ber titilinn Valeyrarvalsinn, verður fagnað með veigum, konfekti og síðast en ekki síst tónlistarflutningi hinna ástsælu Spaða.
Allir velkomnir í Bókabúð Máls og menningar, fimmtudag kl. 17.