Næstkomandi fimmtudag, þann 15. maí, verður efnt til óvenjulegt boðs, svo kallaðrar útgáfugöngu, í tilefni af útgafu bókarinnar 155 Ísland.
Leiðsögumaður er höfundur bókarinnar Páll Ásgeir Ásgeirsson sem hefur árum saman hefur lóðsað áhugasama fjallagarpa um hálendi Íslands. Í þetta skiptið er ferðinni heitið inn með Reykjafelli og að Garðstungu, að skála Óskars vefara, en þar drjúpa áhugaverðar sögur af hverju strái.
Allar frekari upplýsingar má finna hér að neðan en þeir 15 fyrstu sem skrá sig í ferðina á forlagid@forlagid.is fá Ferðakort Forlagsins að launum.
Þessum einstaka viðburði ætti enginn fjallagarpur að missa af. Bókin verður til sölu á staðnum.