María Björk og Sigríður

Útgáfu fagnað

Hugmyndabankinn og hvatningarritið Nýttu kraftinn eftir þær Sigríði Snævarr og Maríu Björk Óskarsdóttur kom út í gær og hoppar í dag beinustu leið í þriðja sæti metsölulista Eymundssonar.

Geysilega fjölmennt var í útgáfuhófinu sem haldið var í Eymundsson Austurstræti í gær og var þörfu verki þeirra stallsystra vel fagnað. Í bókinni er atvinnulausu fólki bent á fjölmargar leiðir við atvinnuleit og farið ítarlega í ráðningarferli, meðal annars með sjálfskoðun, styrkleikaæfingum, gerð ferilskrár og kynningarbréfa, sem og æfingum og ábendingum fyrir atvinnuviðtöl.

INNskráning

Nýskráning