Höfundarnir Guðni Th. Jóhannesson og Steinunn Jóhannesdóttir kynna bækur sínar í ReykjavíkurAkaemíunni annaðkvöld, miðvikudaginn 24. október, kl. 20. Guðni er höfundur ævisögu Gunnars Thoroddsen, fyrrum ráðherra, en Steinunn hefur ritað skáldsögu sem fjallar um fyrstu æviár sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar sem ber titilinn Heimanfylgja. Félagar í Schola Cantorum, undir stjórn Harðar Áskelsonar, munu einnig flytja lög við kvæði Hallgríms Péturssonar.
Kynningin fer fram í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar í JL húsinu við Hringbraut og hefst kl. 20. Boðið verður upp á léttar veitingar, verið velkomin.