365 hugmyndir til að teikna og mála

Uppspretta þúsunda listaverka

Þekkir þú krakka sem hafa gaman af því að teikna? Vantar þig stundum hugmyndir að nýjum listaverkum? Þá er komin út frábær bók fyrir þig. Bókin 365 hugmyndir til að teikna og mála ber nafn sitt svo sannarlega með rentu. Það þarf engum að leiðast sem á þessa stórskemmtilegu bók! Bókin er rúmlega 120 síður í stóru broti og með gæðalegum gormi svo opnurnar sjáist vel. Svo er bara að taka fram pappír og liti og byrja að skapa!

INNskráning

Nýskráning