Jólatré

Upplestur og huggulegheit á jólamarkaði

Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur á Elliðavatni í Heiðmörk verður opinn um helgina milli klukkan 11 og 17. Fyrir utan það að geta nælt sér í jólatré á markaðnum verður dagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna, þar á meðal upplestur rithöfunda. Á laugardaginn les Vigdís Grímsdóttir upp úr nýrri skáldsögu sinni, Trúir þú á töfra?, kl. 13 og Gunnar Helgason les upp úr Víti í Vestmannaeyjum kl. 14. Á sunnudaginn les Herdís Egilsdóttir upp úr ævisögu sinni Sólarmegin, kl. 13.

Nánar um dagskrá á Jólamarkaði Skógræktarfélagsins má nálgast hér.

INNskráning

Nýskráning