Guðmundur Andri og Hallgrímur

Upplestur á jólamarkaði

Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur á Elliðavatni í Heiðmörk verður opinn allar helgar fram að jólum  milli klukkan 11 og 17. Skógræktarfélagið selur jólatré og tröpputré og ýmsan annan varning sem á uppruna sinn í skógum Heiðmerkur.

Auk jólatrjáasölu og íslensks handverks munu rithöfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum á hverjum degi, bæði fyrir börn og fullorðna. Höfundar Forlagsins eru meðal þeirra sem munu lesa upp í jólagleðinnu og eru það Guðmundur Andri Thorsson og Hallgrímur Helgason sem lesa upp núna um helgina.

Einnig munu hermonikkuleikarar þenja nikkur sínar, markaðurinn býður börnunum á hestbak á laugardögum og hægt verður að nálgast kakó og ilmandi vöfflur til að gæða sér á.

INNskráning

Nýskráning