Hrafnsauga er fyrsta bókin í Þriggja heima sögu, æsispennandi sagnaflokki þar sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar óvættir ógna heimunum öllum. Höfundarnir Kjartan Yngvi og Snæbjörn hlutu Íslensku barnabókaverðlaunin í ár og hefur bókin vermt efstu sæti metsölulista yfir barnabækur síðustu vikurnar.
Í dómi Morgunblaðsins fær bókin fjórar stjörnur. Þar segir m.a.: „Sagan gerist í heimi sem er allfrábrugðinn okkar, heimi með sína eigin goðafræði og sína eigin sögu sem er gríðarvel heppnuð, forvitnileg og sveipuð dulúð … er hér komið upphaf að mögnuðum sagnabálki.“
Frábær bók fyrir unglinga jafnt sem fullorðna!