Friðrika Benónýsdóttir skrifar um skáldsöguna Útlaga eftir Jakob Ejersbo í Fréttablaðið í dag og gefur henni fjórar stjörnur. Hún rekur söguþráðinn vel og segir síðan: „Ejersbo tekst aðdáanlega að setja sig inn í hugarheim unglingsstelpu og ljóst að bæði Samantha og aðrar persónur eru byggðar á reynslu hans sjálfs af unglingsárunum í Tansaníu.” Hún er líka hrifin af frásagnarhættinum og finnst þýðandinn hafa náð stílnum vel: „Stíllinn er hrár og sannfærandi sem upplifanir unglings í kreppu og þýðing Páls Baldvins skilar honum yfir á sannfærandi talmál unglings á íslensku.
Útlagi er ekki þægileg lesning en kröftug og vekur til umhugsanir um upplifanir og aðstæður sem lítið hafa verið kynntar hérlendis.” Og niðurstaða hennar er: „Vel skrifuð og umhugsunarvekjandi saga um aðstæður sem fáir Íslendingar hafa haft tækifæri til að kynnast.”