Halldór Laxness

Umfangsmikil útgáfa í Þýskalandi

Þýska forlagið  Steidl hefur uppi mikil áform um útgáfu á bókum Halldórs Laxness í tengslum við þátttöku Íslands í bókasýningunni í Frankfurt í haust.  Af því tilefni hafa þeir endurnýjað samninga á fimmtán verkum Laxness í Þýskalandi: Ungfrúin góða og húsið, Vefarinn mikli frá Kasmír,  Kristnihald undir jökli, Atómstöðin, Sjö töframenn, Fótatak manna, Gerpla, Sjálfstætt fólk, Íslandsklukkan, Paradísarheimt, Guðsgjafarþula, Brekkukotsannáll, Heimsljós, Innansveitarkrónika og Salka Valka.

„Það er okkur metnaðarmál að halda áfram að gefa verk Laxness út í Þýskalandi og bæði heiður og ánægja að að gera bækur hans aðgengilega lesendum á þýskri tungu,“ segir Gerhard Steidl hjá Steidl Verlag sem einnig hefur tryggt sér útgáfurétt í Þýskalandi á Alþýðubók Laxness og nýju safni af ritgerðum skáldsins.

Bækur Halldórs hafa verið þýddar yfir á meira en fjóra tugi tungumála og gefin út í á sjötta hundrað útgáfum um heim allan. Enskur útgefandi bókanna, Random House dreifir bókum Laxness til yfir 50 landa. Að undanförnu hefur verið samið um útgáfu Gerplu í Bandaríkjunum og Tékklandi og um arabíska útgáfu á Brekkukotsannál gegnum líbanska forlagið  Arab Scientific Publishers.

INNskráning

Nýskráning