Með eindæmum hvað Guðbergur er upptekinn af erfðafræðinni. Búinn að andskotast út í mömmu mína, húsmóður í Reykjavík, af úthugsaðri illkvittni fyrir að vera dóttir pabba síns, já ásaka hana og systur hennar á síðum dagblaða að minnsta kosti í tvígang, að mig minnir, fyrir að vera á barmi alsæmer fyrir að leita höfundarréttar skáldsins föður síns, skáldsins sem hann af sínu eðalinnræti hefur ítrekað reynt að koma höggi á í sem ísmeygilegustum orðum, milli þess sem hann hampar Hannesi Hólmsteini ritþjófi, en hann má þá auðvitað eiga það að reyna að blása lífi í lík sem stal texta frá líki sem er búið að brenna og því ekki í aðstæðum til að verja sig. Hvað hafa húsmæður á Bergstaðastræti gert honum? Er minni illkvittni að agnúast út í þær en endurtaka orðrétt viðtal eftir forseta Íslands?
– Auður Jónsdóttir