Betri meðmæli getur Úlfshjarta Stefáns Mána vart fengið en jákvæða umfjöllun eftir besta vin varúlfabókmenntanna hérlendis, Úlfhildi Dagsdóttur. Úlfhildur skrifar um bókina á bokmenntir.is undir yfirskriftinni Dýrið gengur laust en rétt er að vara strax við dómnum, hann segir ansi mikið um söguþráð bókarinnar svo þeir sem vilja ekki vita meira ættu einfaldlega að líta á dóm Úlfhildar sem eindregna hvatningu til að næla sér í bókina 0g lesa hana í hvelli.
Úlfhildur bendir á að þótt úlfurinn hafi verið áberandi í íslenskri menningu til forna, og fjölmörg úlfa-nöfn vitni um það hversu nærtækur hann sé þjóðarsálinni, hafi hanni ekki gert sig sérlega breiðan í nútímabókmenntum. Þessu bæti Stefán Máni úr með sannfærandi hætti og því fagnar gagnrýnandinn: „Einkenni sagna Stefáns Mána er hráslagalegt kraftmikið raunsæi sem er stöðugt skotið undirtónum dulúðar. Þannig virðast verkin vera einfaldur harðkjarna töffaraskapur, eins og birtist til dæmis í kvikmyndinni Svartur á leik (2012). En það eru alltaf einhver draugalýsulog sem trufla og gefa skáldsögunum fjölkunnug blæbrigði sem gera þau áhugaverð, skapa þeim víðara svið og auka á kraftinn. Þetta er allt til staðar í Úlfshjarta, og þrátt fyrir að bókin sé ætluð yngri lesendum, ‚for-unglingum‘, unglingum og ‚ungum fullorðnum‘, slær Stefán Máni ekki af kröfunum. Vissulega er sagan um margt hnitmiðaðri og straumlínulagaðri en fyrri skáldsögur hans (sem iðulega eru all mikilúðlegar), en það þýðir ekki að leitað sé ódýrra lausna. Verkið er einfaldlega vel heppnað og varúlfarnir afar velkomnir.“
Að lokum hrósar Úlfhildur kápuhönnun Eyþórs Páls Eyþórssonar „sem er sömuleiðis afar vel heppnuð og hæfir verkinu fullkomlega.“