Í vikunni komu tvær nýjar kiljur út eftir tvær ungar konur.
Táknmál blómanna er fyrsta bók Vanessu Diffenbaugh og fjallar um stúlku sem á erfitt með að tjá tilfinningar sínar nema með blómum. Þetta er tilfinningarík og átakamikil saga um eftirsjá, höfnun og einmanaleika en líka von, fyrirgefningu og ást. Hugljúf og hrífandi bók sem er tilvalin á náttborðið.
Baldursbrár er þriðja bók Kristinu Ohlsson en Kristina er höfundur Utangarðsbarna sem kom út á Íslandi á síðasta ári og sló rækilega í gegn. Með bókum sínum hefur Kristina stimplað sig inn sem Norrænn krimmahöfundur en hún starfar sem öryggisráðgjafi hjá sænska ríkislögreglustjóraembættinu og getur nýtt reynslu sína til að byggja upp æsispennandi sögufléttur.
Tvær nýjar kiljur til að kúra sig með í janúarkuldanum.