Út eru komnar tvær nýjar smábækur um Kugg eftir Sigrúnu Eldjárn.
Í Listahátíð taka Kuggur, Málfríður og mamma Málfríðar sig til og leggja sitt af mörkum til Listahátíðar í Reykjavík. Mamma Málfríðar byrjar reyndar á því að safna saman öllum mögulegum listum, gólflistum, innkaupalistum og félagalistum, en Kuggur og Málfríður eru fljót að leiðrétta misskilninginn. Þá snúa þau sér að hinum æðri listum og áður en við er litið eru þau búin að flytja tónverk í Hörpu, leikrit í Þjóðleikhúsinu og setja upp myndlistarverk á Listasafni Íslands – allt með sínu lagi. Í bókinni birtast ýmsar þekktar persónur úr menningarlífinu sem gaman er að rekast á á nýjum vettvangi.
Ferðaflækjur er með allt öðru sniði. Þar fer Kuggur með mæðgunum í ferðalag og ýmsar flækjur verða á vegi þeirra, meðal annars orðarugl, dýr í fjöllum og skrautlegir bílar. Lesendur fá því ekki bara skemmtilega sögu heldur líka alls konar þrautir að glíma við – hvort sem þeir eru sjálfir á ferðalagi eða bara heima í rúmi.
Sigrún Eldjárn hefur sent frá sér tugi bóka fyrir börn á ríflega þrjáríu ára ferli sínum sem rithöfundur og myndskreytir. Nýju bækurnar um Kugg munu gleðja bókaorma frá þriggja ára aldri og eru tilvaldar til að taka með sér í ferð um landið eða gönguferð um miðbæinn.