Í gær tilkynnti UK Literacy Association tilnefningar til barnabókaverðlauna sinna, UKLA Book Award, og svo ánægjulega vill til að tvær íslenskar bækur eru á listanum. Tilnefningarnar eru í þremur aldursflokkum og fyrir aldurinn 7-11 ára er tilnefnd Sagan af Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og Áslaugu Jónsdóttur í þýðingu Julian Meldon D’Arcy. Bókin kemur út hjá Pushkin Press í Bretlandi. Á listanum yfir bækur fyrir 3-6 ára er tilnefnd Ólíver eftir Birgittu Sif Jónsdóttur sem kemur út hjá Walker Books.
UK Literacy Association eru góðgerðasamtök sem einbeita sér að læsi. Kennarar á öllum skólastigum tilnefna til verðlaunanna og komu þeir að þessu sinni frá Sussex. Tilkynnt verður um vinningsbækurnar við hátíðlega athöfn í Sussex-háskóla þann 4. júlí í sumar.