Norðurlandaráð

Tvær Forlagsbækur tilnefndar til Norrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna

Dómnefnd nýstofnaðra barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hafa birt nöfn þeirra sem tilnefndir eru til verðlaunanna árið 2013. Af Íslands hálfu eru það bækurnar Skrímslaerjur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler og Ólíver eftir Birgittu Sif Jónsdóttur.

Aðrar bækur sem hlutu tilnefningu eru Søndag (Kim Fupz Aakeson og Eva Eriksson) og Biblia Pauperum Nova (Oscar K. og Dorte Karrebæk) fyrir Danmörku; Karikko ( Seita Vuorela og Jani Ikonen) og Allan och Udo ( Minna Lindberg og LindaBondestam) fyrir Finnland; Inn i elden (Aina Basso) og Fallteknikk (Ina H. Sætre) fyrir Noreg; Vita Streck och Öjvind (Sara Lundberg) og Pojkarna (Jessica Schiefauer) fyrir Svíþjóð; Skriva í sandin (Marjun Syderbø Kjelnæs) fyrir Færeyjar; Hermelinen (Nuka K. Godtfredsen og Martin Appelt) fyrir Grænland; Joels färger (Isela Valve) fyrir Álandseyjar; og Mánugánda ja Heike (Signe Iversen og Sissel Horndal) fyrir samíska tungumálasvæðið.
Norrænu barnabókaverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn þann 30. október um leið og Norðurlandaráð veitir verðlaun fyrir bókmenntir fyrir fullorðna, tónlist, kvikmyndir og Náttúru- og umhverfismál.



INNskráning

Nýskráning