Kristín Marja

Trú á ímyndunaraflið og mátt innlifunarinnar

Skáldsagan Karlsvagninn eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, sem kom út hjá Máli og menningu í fyrra, er nýkomin út í Danmörku og um síðustu helgi birtist ritdómur um bókina í Information undir heitinu „Hugrökk í trú sinni á ímyndunaraflið og mátt innlifunarinnar.” Þar skrifar Erik Skyum-Nielsen meðal annars:

„Maður skilur vel að Kristín Marja Baldursdóttir hafi fundið hjá sér þörf fyrir að skipta úr sinfóníuformati hinnar gríðarmiklu skáldsögu um listakonuna Karitas yfir í blíða kammermúsík í nýrri bók sinni, Karlsvagninum. Bindin tvö um Karitas teygja sig yfir megnið af tuttugustu öldinni en í Karlsvagninum lætur höfundur sér nægja þrjá daga, og þar sem stóru bindin tvö gerðust um allt Ísland og úti í hinum stóra heimi erum við að þessu sinni stödd í sumarbústað – eða réttara sagt „vetrarbústað“ því þar liggur snjór yfir öllu. … Saman fara geðlæknirinn og unglingsstúlkan upp í sveit, spila hornskák, snæða pizzu, ganga um í snjónum. Og smám saman breystast valdahlutföllin svo maður verður efins um hvor sé að passa hvora. Gunnur fer að segja stúlkunni sögu fjölskyldu sinnar en smám saman þróast það sem hefst sem erfið uppeldisleg skylda í sálfræðilega talking cure eða alhliða sjálfsgreiningu. … Það er eitthvað algerlega heillandi við frásögnina af því þegar konan og stúlkan ganga saman inn í hús minninganna þar sem allir sofa, rétt eins og aðalpersónan svaf meðan þjófar léku lausum hala heima hjá henni. Auk þess sem mörg nothæf lífsviskan er fólgin í lýsingunni á móður Gunnar, ömmu og systrum – sterkum konum, harðgerum plöntum frá þeim tíma þegar Íslendingar litu á stritið sem æðstu dyggðina, sýndu föðurlandsást og hylltu iðni og dugnað. Þetta olli nefnilega, eins og sagan sýnir, varanlegum og nagandi kvölum. Inni í þessum dugmiklu, iðjusömu, fórnfúsu konum leyndust oft einmana, þrúgaðar, kúgaðar litlar stúlkur. Þess vegna verða samskipti virta geðlæknisins og hortugu unglingsstúlkunnar eiginlega á jafnréttisgrundvelli þegar fram í sækir. … Á heimavelli gerir skáldsagan upp við hvað það kostar að vera sterk íslensk kona með járnvilja og ábyrgðartilfinningu, en á heimsvísu hvetur hún hvern og einn til að hætta sér inn í hús minninganna og athuga hvort öll sagan um hann hefur nú verið sögð á enda.

INNskráning

Nýskráning