Tröll eftir Brian Pilkington

Úr hverju eru tröllin hans Brians?

Nýlega kom bókin hans Brians Pilkingtons um jólasveinana þrettán út á þýsku og frönsku, en hún var upphaflega einungis gefin út á ensku og íslensku. Bækur Brians um íslensku þjóðtrúna, tröll, jólasveina og huldufólk, hafa notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum árum enda í senn bráðskemmtilegar og trúar gömlu þjóðsögunum.

Annað sumarið í röð hefur starfsfólk Eymundssonar í Austurstræti nú sett upp litla sýningu með verkum Brians og í ár trónir þar á toppi glænýtt tröll sem listamaðurinn setti sjálfur saman. Brian segist hafa notað Fimo-leir í höfuð tröllsins, hendur og fætur. Hann er hægt að kaupa í föndurbúðum og baka í ofninum heima. Búkurinn er úr trékassa sem mýktur er með tilsniðnu frauðplasti. Hárið fékk Brian í Þjóðleikhúsinu og fötin eru úr ýmsum tilfallandi efnum, vafningarnir á fótunum eru til dæmis úr gömlum viskustykkjum með mynstri eftir Brian sjálfan. Listamaðurinn átti í mestum vandræðum með að ná brjóstum tröllskessunnar sannfærandi og endaði á að nota í þau tvær stórar blöðrur fylltar með vatni. Harðbannað er að sannreyna þetta með títuprjóni!

INNskráning

Nýskráning