Ólafur Gunanrsson

Tröllakirkja í klassík

Skáldsagan Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson er nýkomin út í ritröðinni Íslensk klassík hjá Forlaginu. Sagan kom fyrst út árið 1992, hlaut mikið lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Þetta er efnismikil og dramatísk skáldsaga þar sem spurt er um sekt og fyrirgefningu, manninn og Guð. Aðalpersóna sögunnar er Sigurbjörn arkitekt, menntaður í Kaupmannahöfn. Hann hefur stórbrotin áform á prjónunum sem eiga að breyta ásýnd Reykjavíkur en örlögin grípa inn í atburðarásina og glæst áform snúast í harmleik.

Persónur eru margar og litríkar og frásögnin víðfeðm og spennandi, litrík og ljóðræn í senn. Um bókina sagði Kolbrún Bergþórsdóttir í Pressunni: „… feiknavel hugsuð saga sem býr yfir dramatískum þunga, skáldsaga sem kemur lesandanum beinlínis úr jafnvægi. Svo áhrifarík er hún að það er býsna erfitt að losa sig undan mætti hennar.“

Ólafur Gunnarsson (f.1948) er meðal helstu skáldsagnahöfunda á Íslandi og er skemmst að minnast skáldsögu hans Málarans sem kom út sl. haust og var gríðarlega vel tekið. Hann hefur samið tíu skáldsögur og auk þess smásögur, ljóð og barnasögur. Tröllakirkja var sett á svið í Þjóðleikhúsinu og hefur komið út í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi, Tékklandi og Egyptalandi.

INNskráning

Nýskráning