Skáldin og fjöllistamennirnir Einar Már Guðmundsson og Bjartmar Guðlaugsson leiða saman hesta sína ásamt tríóinu Blágresi. Þeir lesa upp úr nýjum bókum sínum, segja sögur og flytja ljóð. Blágresi flytur frumsamda tónlist og Bjartmar spilar og syngur nokkrar af sínum helstu perlum.
Tónleikarnir verða haldnir í Vonarsalnum, Efstaleiti 7, á sunnudaginn 11. september kl. 20:30