Tommi Teits

Tommi Teits kemur í haust!

Í haust er von á íslenskri þýðingu hins eiturhressa Tom Gates (sem á íslensku heitir Tommi Teits)!

Tommi Teits er ósköp venjulegur drengur – kannski í stríðnari kantinum – sem hefur ógurlega gaman af því að teikna, krota og krassa. Sögurnar af Tomma eru dagbækur hans, sem hann myndskreytir sjálfur og segir frá með sínum einstaka og einlæga stíl. Þrátt fyrir að hann sé í hljómsveit með Daða, besta vini sínum, lætur skólasystirin Embla eins og hún sjái hann ekki. Það er skiljanlega óþolandi.

Krakkar á aldrinum 7-12 ára um allan heim veltast um af hlátri yfir uppátækjum hans, stöðugu súkkulaðiáti og frumlegum hrekkjum.

„Frábær blanda af skemmtilegum texta og flottum myndum“ segir dagblaðið Guardian.

Gerður Kristný íslenskar sprelligosann Tomma Teits, en bækurnar hafa verið þýddar á 33 tungumálum.

INNskráning

Nýskráning