Fæstir gerir ráð fyrir því að þjást af D-vítamínskorti en íslenskar rannsóknir hafa sýnt að við fáum allt of lítið af þessu mikilvæga vítamíni úr okkar fæðu – styrkur D-vítamíns í blóði þeirra sem hvorki taka lýsi né önnur fæðubótarefni er töluvert undir viðmiðunarmörkum. Nú er komin út mikilvæg bók um þetta galdraefni, D-vítamínið.
Tímamótarannsóknir hafa sýnt fram á samband D-vítamínskorts við sautján afbrigði af krabbameini, þar á meðal í brjóstum, ristli og blöðruhálskirtli. Aðrir kvillar svo sem flensa, sykursýki, MS og hafa einnig verið tengdir við D-vítamínskort. Höfundurinn Dr. Khalsa er þekktur sem framsækinn læknir sem blandar saman hefðbundnum vestrænum læknisaðferðum við aldagamlar aðferðir austrænna lækninga, s.s. nálastungur, jurtalækningar og jóga.