Tími til að tína!

Núna er náttúran í essinu sínu og  Jónsmessan á næsta leiti.  Hvað gæti verið betra fyrir okkur en að ná okkur í kraft og heilsubót frá jurtunum sem nú eru í fullum blóma og allt um kring?

Þá er tilvalið að grípa með sér bókina Íslenskar lækningajurtir, söfnun þeirra, notkun og áhrif eftir Arnbjörgu L. Jóhannsdóttur en þar er gerð grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta og hvernig má nýta þær sér til heilsubótar. Nú er dagurinn langur og upplagt að ná sér í forða fyrir heilsuna en í bókinni er sagt frá hvernig við söfnum jurtunum, meðhöndlum þær, geymum og breytum í lyf og smyrsli. Íslenskar lækningajurtir er handhægt og gott uppflettirit sem á heima með kortabókunum í bílnum þar sem við getum gripið hana með okkur þegar við göngum út í náttúruna okkur til heilsubótar.  Læknum okkur sjálf í sumar!

INNskráning

Nýskráning