Landsmenn sitja límdir við sjónvarpsskjáinn á sunnudagskvöldum og fylgjast þar með sannleiksleit Einars blaðamanns á Síðdegisblaðinu. Sakamálaþættirnir Tími nornarinnar, byggðir á samnefndri sögu Árna Þórarinssonar, hafa vakið verðskuldaða athygli og benda áhorfstölur til þess að glæpasagnaáhugi Íslendinga sé síst í rénum. Aukinheldur klífur nýjasta bók Árna um hinn eitilklára Einar, Morgunengill, hátt á metsölulistum bókabúðanna en hún er nýkomin út í kilju.