Tímakistan tilnefnd!

Við óskum Andra Snæ Magnasyni innilega til hamingju! Ein skrautfjöður til var að bætast í hatt Tímakistunnar, sem þegar hefur fengið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og útnefningu sem besta íslenska unglingabók ársins frá íslenskum bóksölum. Rétt í þessu var tilkynnt að Tímakistan yrði framlag Íslands til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2014!  Andri hefur þegar fengið þessi mætu verðlaun einu sinni, fyrir Söguna af bláa hnettinum. Verðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár frá árinu 2002 og er nú tilnefnt til þeirra í sjöunda skipti.  Þau hljóta barna- eða unglingabók sem þykir bera af öðrum sambærilegum bókum sem gefnar hafa verið út í Færeyjum, Grænlandi eða Íslandi.







INNskráning

Nýskráning