Í vikunni gerðust þau tíðindi að Réttindastofa Forlagsins seldi útgáfurétt á Tímakistunni eftir Andra Snæ Magnason bæði til Japan og Kína.
Í Japan er það forlagið NHK, þekkt fyrirtæki sem stofnað var af japanska útvarpinu 1931 og stendur framarlega í útgáfu á gæðabókmenntum fyrir alla aldurshópa þar í landi. Í Kína er það annað stórt forlag, Jieli, sem sérhæfir sig í bókum fyrir börn og unglinga og gefur út um 400 titla á ári.
Bækur Andra Snæs virðast hafa einstakt aðdráttarafl og höfða til fólks um allan heim. Tímakistan, Draumalandið og LoveStar hafa verið seldar til fjölda annarra landa sem og Sagan af bláa hnettinum sem hefur komið út í 30 löndum.