Rithöfundurinn Bragi Ólafsson heldur hádegisfyrirlestur á vegum Bókmennta- og listfræðastofnunnar Háskóla Íslands á morgun fimmtudag. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 105 á Háskólatorgi og eru allir velkomnir.
Í fyrirlestri sínum mun Bragi ræða um tilurð bókarinnar Gæludýrin sem er grátbrosleg saga um mann sem er stóran hluta sögunnar undir rúmi og verður þar vitni að einu og öðru skringilegu.
Fyrirlestur Braga er hluti af röð fyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“. Þar veita íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins.