Umhverfis Ísland

Tilraunakennt útgáfuboð Ævars Vísindamanns

Ævar vísindamaður fagnar útgáfu bókar sinnar Umhverfis Ísland í 30 tilraunum í Iðu, Lækjargötu 2, næstkomandi laugardag, þann 24. maí,  frá klukkan 15:00 til 17:00. Bókarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og hún er vís til þess að skemmta krökkum á öllum aldri í allt sumar! Ævar þarf vart að kynna fyrir kátum krökkum en hann hefur verið með þætti í útvarpi, leikið í fjölda sýninga og stjórnað hinum geysivinsælu þáttum á RÚV um vísindamanninn Ævar.

Ævar hefur einnig opnað frábæran vef  sem er stútfullur af skemmtun: www.visindamadur.is.

Í útgáfuboðinu fá allir Víslandskort Ævars og þeir sem kaupa bókina fá að auki plakat áritað af Ævari.

INNskráning

Nýskráning