Tilnefnt til menningarverðlauna DV

Tilkynnt var um tilnefningar til menningarverðlauna DV í dag en á lista nefndarinnar sem las sig í gegnum bókmenntastaflann má finna nöfn Guðbergs Bergssonar, Kristjáns Árnasonar og Péturs Gunnarssonar. Guðbergur er tilnefndur fyrir þýðingar sínar á portúgalskri ljóðslist sem komu út í ritinu Öll dagsins glóð en í umsögn dómnefndar segir m.a. að safnið sé nýstárlegt og hafi bæði fagurfræðileg sérkenni og almenna sögulega vísun. Þýðing Kristjáns Árnasonar á Ummyndunum Óvíds fær einnig afar fína umsögn hjá nefndinni sem segir þýðinguna „afbragðsgóða“ og hreinlega lestrarnautn. Pétur Gunnarsson er síðan tilnefndur fyrir seinna bindi sitt af ævisögu Þórbergs Þórðarsonar, ÞÞ – Í forheimskunarlandi en þar tekst honum, að mati nefndarmanna, að varpa upp nýrri og forvitnilegri hlið á skáldinu og samtíma hans. Menningarverðlaun DV verða afhent í 31. sinn þann 10. mars nk.

INNskráning

Nýskráning