Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í gær. Það ríkir gleði mikil í Vesturbænum, ekki síst með nýjan tilnefningaflokk barna- og unglingabóka. Þar hlutu Tímakistan eftir Andra Snæ, Múrinn eftir Sif Sigmarsdóttur, Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn og Vísindabók Villa eftir Vilhelm Anton Jónsson tilnefningar. Í flokki fagurbókmennta hlutu Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson, Mánasteinn eftir Sjón og Dísusaga Vigdísar Grímsdóttur tilnefningar. Í flokki fræðirita voru Vatnið eftir Guðmund Páll Ólafsson, Leiftur á horfinni öld eftir Gísla Sigurðsson og Fjallabókin eftir Jón Gauta Jónsson tilnefnd. Loks hlaut meistari Stefán Steinsson tilnefningu til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir þýðingu sína á Rannsóknum Heródótusar.
Við óskum öllum aðstandendum þessara góðu bóka til hamingju með árangurinn!