Tilkynnt var um tilnefningarnar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, nú um helgina. Tilnefndar í flokki fagurbókmennta eru ljóðabækurnar Blóðhófnir og Síðdegi eftir Gerði Kristnýju og Vilborgu Dagbjartsdóttur og skáldsagan Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur. Í flokki fræðibóka eru bækurnar Tónlist í leikskóla eftir Sigríði Pálmadóttur og ævisagan Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar eftir Sigrúnu Pálsdóttur tilnefndar auk bókarinnar Konan sem fékk spjót í höfuðið eftir Kristínu Loftsdóttur sem út kom hjá Háskólaútgáfunni.
Í flokki barna- og unglingabóka eru tilnefndar bækurnar Skrímsli á toppnum eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler, Íslensk barnaorðabók sem Ingrid Markan, Laufey Leifsdóttir og Anna Cynthia Leplar önnuðust útgáfuna á og bókin Þankagangur sem Vala Þórsdóttir og Agniezka Nowak skrifuðu og gáfu út.
Verðlaunin verða afhent í mars.