Viðurkenningar Hagþenkir

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2013

Fyrr í dag kynnti Hagþenki tilnefningar sínar til Viðurkenningar Hagþenkis 2013. Viðurkenning Hagþenkis telst til einna virtustu og veglegustu verðlauna sem veitt eru höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning.

Viðurkenningaráð, skipað fimm félagsmönnum af ólíkum fræðasviðum til tveggja ára í senn, stendur að valinu og um mánaðamót febrúar og mars er tilkynnt hver hlýtur Viðurkenningu Hagþenkis 2013.

Að þessu sinni hljóta fjórir höfundar Forlagsins tilnefningu, Sigrún Pálsdóttir fyrir magnaða bók sína Sigrún og Friðgeir, Aðalsteinn Ingólfsson fyrir glæsilega bók sína um líf og störf Karólínu Lárusdóttur og Edward Hákon Huijbens og Gunnar Þór Jóhannesson fyrir þarfa bók sína um Ferðamál á Íslandi.

Í dómi valnefndarinnar segir um bók Sigrúnar: „Nákvæm fræðileg vinnubrögð, ásamt úthugsaðri og látlausri framsetningu, gera þetta að einstöku verki á mörkum ævisögu og sagnfræði.“

Um bók Aðalsteins: „Lifandi frásögn af ævi og list merkrar myndlistarkonu, prýdd fjölda mynda af verkum hennar. Glögg greining á ferli listamanns.“

Og um bók Edwards og Gunnars: „Tímabært undirstöðurit um ferðamál og þarft innlegg í umræðu um einn af helstu atvinnuvegum þjóðarinnar.“

Við óskum þeim innilega til hamingju!

Hér má finna heimasíðu Hagþenkis

INNskráning

Nýskráning