Tilnefningar til menningarverðlauna DV

Tilkynnt var um tilnefningar til menningarverðlauna DV í dag. Í bókmenntaflokkinum voru tilnefndar ljóðabækurnar Síðdegi eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur, skáldsagan Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur og þýðing Erlings E. Halldórssonar á Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante. Þá var skáldsaga Eiríks Guðmundssonar, Sýrópsmáninn, einnig tilnefnd.
Menningarverðlaunin verða afhent miðvikudaginn 2. mars nk. á Hótel Borg.

INNskráning

Nýskráning