Menningarverðlaun DV fyrir árið 2011 verða afhent miðvikudaginn 7.mars í Iðnó klukkan 17.00. Í flokki bókmennta eru fimm af sex tilnefndum bókum frá Forlaginu.
Guðmundur Andri Thorsson er tilnefndur fyrir sagnasveig sinn Valeyrarvalsinn, sem er safn smásagna sem allar gerast í sama sjávarþorpinu og tengjast innbyrðis. Vigdís Grímsdóttir er tilnefnd fyrir Trúir þú á töfra? sem fjallar um Nínu Björk litlu og lífsbaráttu hennar í þorpinu skrýtna. Þórarinn Leifsson er tilnefndur fyrir æviskáldsöguna Götumálarinn sem er í bland ferða- og þroskasaga Íslendings sem flækist um og vinnur fyrir sér með götulistaverkum. Guðrún Eva Mínervudóttir er tilnefnd fyrir Allt með kossi vekur sem vann nýlega til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Ragna Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir íslensku samtímasöguna Bónusstelpan.
Í flokki fræða er Sölvi Sveinsson tilnefndur fyrir bók sína Táknin í málinu sem gert er grein fyrir merkingu, sögu og birtingarmyndum mörg hundruð tákna.
Forlagið óskar höfundunum innilega til hamingju og minnir lesendur á að hægt er að kjósa þá tilnefningu sem þeim líst best á vef DV. Sú tilnefning sem hlýtur flest atkvæði fær sérstök verðlaun sem kallast Val lesenda á Menningarverðlaunum DV.