Tilnefningarmiði

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Föstudaginn, 1. desember, var upplýst hverjir eru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna þetta árið. Forlagið er stolt af höfundum sínum sem tilnefndir eru og óskar þeim innilega til hamingju.

Í flokki fagurbókmennta er Hallgrímur Helgason tilnefndur fyrir bók sína Konan við 1000° sem fjallar um Herbjörgu Maríu sem er ein og yfirgefin í bílskúr í Austurbænum og gerir upp viðburðaríkt líf sitt. Guðrún Eva Mínervudóttir er einnig tilnefnd fyrir bók sína Allt með kossi vekur en höfundur bryddar upp á þeirri nýjung að blanda saman myndasögum og texta sem veitir bókinni enn meiri dýpt.

Í flokki fræðibókmennta og rita almenns efnis er Sigríður Víðis Jónsdóttir tilnefnd fyrir áhrifaríka bók sína Ríkisfang: Ekkert sem segir frá flóttakonum sem fengu, ásamt börnum sínum, hæli á Akranesi. Saga kvennanna er rakin, veru þeirra í flóttamannabúðum lýst og sagt frá því hvernig þeim hefur tekist að aðlagast íslensku samfélagi. Ævisaga Gunnars Gunnarssonar, Landnám, eftir Jón Yngva Jóhannsson er einnig tilnefnd en bókin byggir á umfangsmikilli könnun heimilda, fjallað er hispurslaust um einkalíf Gunnars og skáldverk hans tekin til rækilegrar umfjöllunar og endurmats. Matreiðslu- og lífsstílsbókin Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar er einnig tilnefnd í þessum flokki. Höfundar eru hjónin Inga og Gísli Egill og sýna þau í þessari einstöku bók hvernig fjölskyldan getur notið þess besta sem lífið hefur að bjóða með því að þiggja gjafir náttúrnnar og elda síðan og framreiða það sem hollt er og gott.



INNskráning

Nýskráning