Til heiðurs Karólínu

Við fögnum glæsilegri listaverkabók um feril Karólínu Lárusdóttur í dag kl. 17. Það er sannur fengur að þessari fallegu bók, í henni eru 146 litmyndir af verkum Karólínu – olíumálverkum, ætingum, akvatintum, teikningum og steinprenti – auk fjölda ljósmynda úr fjölskyldualbúmum hennar. Aðalsteinn Ingólfsson skrifar ítarlega grein um listakonuna, ævi hennar og listþróun, bæði á ensku og íslensku, og í bókarlok eru skrár yfir helstu sýningar hennar.
Útgáfuhófið verður í Björtuloftum í Hörpu (6. hæð), verið hjartanlega velkomin.


INNskráning

Nýskráning