Til hamingju!

Bókaverðlaun barnanna voru afhent við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu í gær. Þangað mætti brosmildur Gunnar Helgason, höfundur hinnar geysivinsælu fótboltasögu Aukaspyrnu á Akureyri sem íslenskir lesendur á aldrinum 6-12 ára völdu bestu íslensku barnabók síðasta árs. Við óskum Gunna hjartanlega til hamingju með þessa mikilvægu upphefð og kætum aðdáendur hans með því að von er á þriðju bókinni, Rangstæðum í Reykjavík, innan skamms.

INNskráning

Nýskráning