Þórarinn Leifsson

Til hamingju Tóti!

Bók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar, var í dag tilnefnd af hálfu Íslands til Norrænu barnabókaverðlaunanna. Félag fagfólks á skólasöfnum stendur að tilnefningunni. Verðlaun þessi eru heiðursverðlaun samtaka norrænna skólasafna, Nordisk Skolebibliotekarforening, og forstöðumanna þeirra en þau hafa verið afhent síðan 1985.

Fjórir íslenskir höfundar hafa til þessa hlotið verðlaunin, Guðrún Helgadóttir, Kristín Steinsdóttir, Ragnheiður Gestsdóttir og Brynhildur Þórarinsdóttir.


INNskráning

Nýskráning