Ófeigur Sigurðsson

Til hamingju, Ófeigur!

Ófeigur Sigurðsson er meðal þeirra sem hljóta bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins á þessu ári. Bók hans frá í fyrra, Skáldsaga um Jón, var valin ein af tólf bestu skáldverkum Evrópu á árinu 2010.  Tilkynnt var um verðlaunin á bókasýningunni í Frankfurt en þau verða veitt í Brussel í lok nóvember. Ófeigur hafði áður gefið út nokkrar ljóðabækur og eina skáldsögu.

Verðlaunin nema 5000 evrum og þeim fylgja óvenjuháir þýðingastyrkir frá Evrópusambandinu til að freista útgefenda í öðrum löndum.

INNskráning

Nýskráning