Til hamingju með afmælið Skúli!

Góðvinur Forlagsins, Skúli skelfir, fagnar þessa dagana því að nú eru 20 ár liðin frá útgáfu fyrstu bókarinnar um hann!

Í tilefni af afmælinu hefur breska forlag Skúla ákveðið að endurprenta allra fyrstu bókina í sérstakri viðhafnarútgáfu. Ekki nóg með það heldur er von á glænýrri bók um Skúla í Bretlandi en hún er sú 23. í sögubókaröðinni.

Skúli skelfir hefur heillað börn um allan heim með uppátækjum sínum en rúmlega 20 milljón eintök hafa verið seld um heim allan.

Forlagið gaf í vor út tvær nýjar bækur um Skúla, Risaeðlur og Martröð Skúla skelfis, en yfir 20 bækur hafa komið út í íslenskri þýðingu.

Til hamingju með afmælið Skúli!

INNskráning

Nýskráning