Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru veitt í Iðnó um helgina. Í flokki skáldverka hreppti Kristín Steinsdóttir hnossið fyrir skáldsögu sína Ljósu. Í umsögn dómnefndar segir að Kristín skrifi í bók sinni á einkar næman hátt um vaxandi geðveiki. Textinn sé hæglátur og láti lítið yfir sér en höfundur hafi meistaraleg tök á fléttu og sjónarhorni og leiði eða jafnvel afvegaleiði lesandann á hárfínan hátt í gegnum söguna. Lesandinn svo að segja læsist inni í textanum og segja megi að sagan komi að lokum aftan að honum, á sama hátt og geðsýkin læðist að söguhetjunni. Kristín skapi hér margræða sögu, sem lýsir erfiðum aðstæðum hugsjúkrar konu í íslenskri sveit á nítjándu öld án þess nokkurn tíma að falla í gryfju tilfinningasemi né bjóða upp á svarthvíta mynd af veruleikanum eða einföld svör við þeim spurningum sem sagan veltir upp.
Önnur kiljuprentun bókarinnar er nýkomin í bókabúðir.