Í gær voru Menningarverðlaun DV veitt í 34. skipti við hátíðlega athöfn í Iðnó. Það gladdi okkur á Forlaginu sérstaklega að í flokki fræða hlaut Gunnar Þór Bjarnason verðlaunin fyrir bók sína Upp með fánann – Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga.
Í umsögn dómnefndar segir: „Hér er fjallað um sögulegar og örlagaríkar alþingiskosningarnar 1908. Aðalmál kosninganna var samningur milli Dana og Íslendinga um samband landanna innan danska konungsríkisins, Uppkastið. Hannes Hafstein ráðherra sat ásamt sex öðrum Íslendingum og 13 Dönum í samningsnefndinni og fór um allt land fyrir kosningar til að mæla fyrir samningnum, enda taldi hann um sanngjarna málamiðlun og framfaraspor að ræða. Margir stjórnarandstæðingar studdu Uppkastið, þar á meðal Valtýr Guðmundsson. Andstæðingar Uppkastsins, til dæmis Björn Jónsson ritstjóri og Bjarni Jónsson frá Vogi, fóru mikinn og sökuðu Hannes Hafstein og aðra stuðningsmenn Uppkastsins um undirlægjuhátt. Varla þarf að hafa fleiri orð um mikilvægi þessa kafla í Íslandssögunni og skírskotunina til nútímans en Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur rekur hana með þeim hætti að allir, jafnt fræði- sem áhugamenn um sögu og samtíð, hafa bæði gagn og gaman af.“
Í dómnefndinni sátu Ragnheiður Gyða Jónsdóttir formaður, Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur og Þórhallur Eyþórsson málvísindamaður.
Við óskum Gunnari Þór innilega til hamingju með verðlaunin.